H öfuðborg Spánar heillar margan ferðamanninn en þó Spánn allur heilli flesta fölbleika Íslendinga að sumarlagi er óráð að þvælast um í Madríd í júlí og ágúst.

Falleg og skemmtileg en hitinn hér getur auðveldlega orðið óbærilegur að sumarlagi. Mynd MetOffice

Rithöfundurinn Ernest Hemingway skrifaði í einni bók sinni að óvíða væri loftslagið betra en í Madríd.

Vel er það en karlinn var líka á vappi í borginni fyrir tæpum hundrað árum og eins og annars staðar á hnettinum hefur Madríd hvorki farið varhluta af hlýnun jarðar né þúsundfaldri loftmengun.

Víst er indælt loftslag í Madríd almennt séð þegar mengun er ekki of mikil. Það helgast af því að borgin stendur mjög hátt sem þýðir að ferskt loft blæs víða að af láglendi en ekki síður vegna þess að borgin er í skjóli fyrir hörðustu norðanáttum þökk sé Guadarrama-fjallgarðinum sem rís upp litla 2.500 metra fyrir norðan borgina.

Einhver kann að hugsa sem svo að heimsókn hingað að sumarlagi sé hin besta hugmynd og það er hún; svo lengi sem ekki er farið í júlí- eða ágústmánuði. Það er einn lítill plús við heimsókn á þeim tíma og einn risastór mínus.

Plúsinn er sá að borgarbúar sem það geta láta sig að mestu leyti hverfa seinnihluta júlí og mestallan ágústmánuð og halda þá til sjávarbyggða í frí. Ástæða þess að allir fara á sama tíma er einföld: óbærilegur hitinn á þessum tíma.

Þetta þýðir hins vegar að ferðafólki eru allir vegir færir. Sallarólegt að gera í verslunum, engin röð inn á helstu söfn og víðast hvar lausir stólar fyrir utan bari og veitingastaði. Í ofanálag grípa sumar verslanir og þjónustuaðilar til þess ráðs að lækka verð á vörum sínum þennan tíma til að freista sérstaklega þeirra fáu sem vappa um.

Mínusinn er hins vegar öllu stærri og það er hitinn. Hitinn er svo yfirgengilegur að hver einasta hreyfing verður þung og flókin og allar áætlanir um að skoppast hingað og þangað til að skoða hitt og þetta detta niður dauðar eftir nokkrar mínútur þegar fólk þarf í sturtu prontó og aukinheldur að skipta um föt vegna svita. Heimamenn, sem þó eru öllu vanari hitanum en Norðurlandabúar, tala um þriggja til fjögurra sturtu daga í júlí og ágúst og meina auðvitað að þrjár til fjórar sturtur hvern dag sé lágmark ætli menn sér að vera sæmilega tilhafðir og svitalausir stundarkorn í senn.

Það er sem sagt molla á mollu ofan eins og gefur að skilja þegar hitastigið nær nokkuð reglulega 32 til 38 gráðum og hin síðari ár hefur hitastig í ágúst hlaupið upp í 40 gráður fleiri daga í senn yfir hádaginn. Enginn Íslendingur þolir það lengi.

Gerðu því ráð fyrir að komast yfir mun minna í Madríd en þú ætlar sé ferð þangað á döfinni seinnipart júlí eða í ágúst.