Frá því að Donald Trump tók við embætti sem forseti Bandaríkjanna hefur heimsóknum erlendra ferðalanga til landsins fækkað um allt að 20 prósent miðað við sama tíma í fyrra. Þeim gæti fækkað mun meira en það innan tíðar.

Þessi gæti sett stórt strik í flugumferð á heimsvísu á næstu misserum.

Gárungar vestanhafs eru þegar komnir með nafn á samdráttinn í ferðaþjónustunni. Trump Slump kallast það enda velkist enginn hugsandi maður í vafa um að aðgerðir forsetans, háttalag, hugsunarleysi og almennur skrípaleikur gerir það minna fýsilegt að heimsækja Kanann nú en áður. Þetta er jú forseti sem hótaði að senda herinn sísona inn í Chicago fyrir skömmu til að bæla niður glæpi í þeirri borg. Pant ekki vera að njóta lífsins þar þegar þeir marsera inn.

Núverandi niðurgangur er þó líklega aðeins forsmekkurinn af því sem koma skal ef forsetinn ákveður að fara að ráðum forsvarsmanna þriggja stærstu flugfélaga Bandaríkjanna. Þeir leggja hart að forsetanum að skjóta Open Skies samkomulagið á kaf.

Open Skies er samheiti yfir samning fjölmargra þjóða heims um frjálst og að mestu óheft áætlunarflug í lofthelgi viðkomandi landa og flug til og frá viðkomandi löndum. Bandaríkin er eitt stofnríkja þess samkomulags sem haft hefur gríðarlega jákvæðar breytingar í för með sér fyrir velflesta flugfarþega í heiminum.

En forsvarsmenn American Airlines, United og Delta vilja að forsetinn rifti samkomulaginu hið fyrsta og benda á að það sé í takt við yfirlýsingar forsetans þess efnis að styrkja innlend fyrirtæki og skapa störf fyrir landann. Ástæða kergju forstjóranna einfaldlega að erlend samkeppni hefur reynst þeim afar erfið og þá sérstaklega samkeppnin frá flugfélögunum frá Persaflóaríkjum: Emirates, Qatar og Etihad. Markaðshlutdeild þessara erlendu stækkar jafnt og þétt á kostnað þeirra bandarísku og það fer illa niður hjá feitum stjórum.

Með það í huga að þessi forseti virðist hugsunarlaust taka skjótar ákvarðanir án tillits til afleiðinga er hreint ekki útilokað að Trump rifti Open Skies og það líklega með tísti seint um nótt. Í það minnsta segir USA Today að Trump hafi tvívegis að undanförnu átt fundi með fyrrnefndum stjórum flugfélaganna þar sem það var rætt.

Vart þarf að efast um að slík aðgerð er heimskuleg í öllu tilliti en Trump hefur þegar sýnt að heimskulegar ákvarðanir eiga samastað í Hvíta húsinu og því alls ekki útilokað að riftun Open Skies verði raunin hvað sem tautar og raular. Þar með færist áætlunarflug á heimsvísu aftur um nokkra áratugi og rekstrarmódel Wow Air, Icelandair og fjölmargra annarra flugfélaga hrynur eins og spilaborg.