Alveg sama hver á í hlut eða hvar. Það er lítið annað en dónaskapur og níðingsháttur að gera upp á milli fólks. Sem er nákvæmlega það sem flugfélagið SAS gerir þessa dagana.

Svíar komast aðra leiðina til Aþenu fyrir sex þúsund krónur svo fátt sér nefnt af sértilboðum SAS til Svía. Skjáskot

Skandinavíska flugfélagið heldur úti sérvefum fyrir öll Norðurlöndin en sá vefur þeirra sem ætlaður er Íslendingum er á ensku. Engin nenna til að sýna þessum fáu hræðum á klakanum almenna kurteisi eða þjónustu.

Allt í lagi. Við erum jú flest vel að okkur í enskunni.

Töluvert ömurlegra þegar SAS blæs til fargjaldaveislu á öllum Norðurlöndunum nema Íslandi. Alls staðar annars staðar en á Íslandinu gefst fólki tækifæri að grípa milljón flugsæti á sérstöku tilboðsverði fram til 10. janúar eins og sést á meðfylgjandi skjáskotum sem tekin eru af sænskum og dönskum vef SAS.

Danir geta dúllað sér fram og aftur til Hong Kong fyrir 50 þúsund kallinn gegnum sértilboð SAS. Skjáskot

Kíki fólk á „íslenskan“ vef flugfélagsins atarna, sem gerir sig jú út fyrir að sinna sérstaklega Norðurlandabúum finnst ekki stafur um nein tilboð. Hvergi einu sinni bent á að með því að fljúga til Köben eða Stokkhólms eða Oslóar eða Helsinki geti Íslendingar nýtt sér eitt af fjölmörgum ágætum tilboðum flugfélagsins.

Nei, ekki svo gott einu sinni. Það eina sem stendur skýrum stöfum þar er hvað það sé mikill sveigjanleiki að kaupa SAS PLUS fargjöld þeirra.

Nú hefur SAS verið í einhvers konar samkrulli við Icelandair um langa hríð. Ætli raunin sé að það samstarf þýði að SAS auglýsi aldrei sértilboð sín á Fróni? Kæmi svo sem ekki á óvart ef svo væri.