Góðu heilli halda innlend alþjóðaflugfélög áfram að bæta stað og stað við flugáætlanir og þó markmiðið sé ekki að trylla lýðinn hér á klakanum heldur fyrst og fremst að ná í fleiri erlenda ferðamenn þá njótum við klakafólkið góðs af líka þó hið sama verði ekki sagt um náttúruna okkar.

Úr vöndu að ráða til Flórída á næsta ári...

Úr vöndu að ráða til Flórída á næsta ári…

Bæði Wow Air og Icelandair hafa bætt við áfangastöðum í Flórídaríki síðustu misserin. Wow Air flýgur beint til Miami en Icelandair valdi Tampa sem sinn næsta kost á þeim skaga. Tampa kann að virðast undarlegur kostur en þetta er æði flott borg og allnokkuð fjölmennari en Orlandó sjálf þó minna sé um ævintýragarða fyrir smáfólkið. Tampa er líka viðskiptaborg og þar nokkuð um feita seðla í umferð og líklega eftir nokkru að slægjast fyrir Icelandair á Saga Class.

Fátt þarf að segja um Miami. Það er stórborg par exellans og fyrir fólk með púls þarf að hafa töluvert mikið fyrir að leiðast þar í bæ. Þar líf í flestum tuskum alla daga ársins.

Mínusinn við skemmtilegar borgir heims er verðlagið. Prísar almennt í Miami eru ekki allra. Þar fæst varla skyndibiti undir tvö þúsund krónum og hótelgisting í dýrari kantinum. Svona dálítið eins og Reykjavík ef verð í verslunum er frá talið.

Tampa aftur á móti er mun huggulegri fyrir pyngjuna þó aðeins séu rúmir tveir tímar á milli borganna. Tampa telst vera gróflega 25 prósent ódýrari sem áfangastaður en Miami og munar um minna fyrir almenning á Íslandi.

Sá sparnaður fer þó fyrir lítið þegar litið er til fargjalda. Icelandair heimtar að lágmarki tæpar 36 þúsund krónur fyrir flugið aðra leið út og flug fram og aftur til Tampa finnst ekki á vef þeirra undir 70 þúsund krónum þegar þetta er skrifað.

Wow Air er aftur á móti enn að bjóða hin ágætustu fargjöld til Miami. Ekki hvað síst ef farangur fylgir ekki með. Þá komast áhugasamir aðra leiðina út niður í 22 þúsund kallinn og kringum 50 þúsund fram og aftur miðað við lægstu fargjöld í boði með fyrirvara. Það dágóður verðmunur jafnvel þó hafi verði í huga að með Icelandair má hver og einn farþegi taka með sér töskudruslu sem kostar auðvitað aukalega hjá Wow Air. En jafnvel þó þú takir tvær með til Miami er Wow Air samt að bjóða nokkuð lægra verð sé miðað við ódýrustu fargjöld.