Dyggir lesendur Fararheill vita sem er að þrátt fyrir verðlaun og flottheit er hinn íslenski flugleitarvefur Dohop ekki alltaf á tánum fyrir viðskiptavini sína. Ný úttekt staðfestir það.

Hvar er greddan hjá Dohop?

Enn virðist Dohop ekki bjóða okkur allra best í fluginu…

Frosti Sigurjónsson, framsóknarmaður og forkólfur Dohop, lofar bót og betrun á þinginu en á meðan missa menn tökin í fyrirtæki hans. Þau tök að bjóða mest og best og sannarlega finna lægsta verð á flugi hingað og þangað um heiminn. Ekki í fyrsta skipti sem framsóknarmaður lofar öllu fögru og stendur ekki við staf.

Eins og sjá má á þremur stikkprufum sem við tókum þetta ágæta sumarkvöld, fram og aftur til Boston, Alicante og New York fyrir einn einstakling á næstu mánuðum, er Dohop ekki alveg að rokka og róla í samanburði við hinn danska Momondo. Einhver hefði haldið að íslenskur flugleitarvefur, sem hefur verið í krulli við Wow Air gegnum tíðina, ætti að geta fengið betri kjör en einhverjir Danir úti í heimi. En ekki er það raunin eins og gefur að líta. Flugið er bara dýrara þrátt fyrir samkrullið.

wowalido

wowalimom


wowbosdo

wowbosmom


wownydo

wownymom

Varla þarf að segja dyggum lesendum að hafa salt með öllu sem haldið er fram á fjölmiðlum og í auglýsingum. Þó ekki sé um stórupphæðir að ræða virðist sá íslenski ekki geta boðið okkur betra verð á flugi út í heim en aðrir úti í heimi.

* Leitað samtímis á vefum Dohop og Momondo klukkan 21:00 þann 4. ágúst 2016.