Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa gefið út ferðaviðvörun til handa þeim er hyggjast heimsækja Flórída í Bandaríkjunum. Zíka-veirunni um að kenna en viðvörunin beinist sérstaklega að barnshafandi konum.

Sú tegund moskító sem flytur Zika-vírusinn manna á milli. Hún er þekkt á hvítum doppum og gerir nú usla á Flórída.

Sú tegund moskító sem flytur Zika-vírusinn manna á milli. Hún er þekkt á hvítum doppum og gerir nú usla á Flórída.

Þeim ráðlagt að sleppa alfarið öllum ferðum til fylkisins nema erindi sé því brýnna en aðeins nokkrir dagar eru síðar bandarísk yfirvöld tilkynntu að fyrstu tilfelli sýkingar hefðu fundist í Flórída hjá einstaklingum sem ekki höfðu ferðast utan fylkisins. Sú tala hefur nú hækkað í fjórtán tilfelli.

Fram kemur á vef dagblaðsins Orlando Sentinel að aðeins sé tímaspursmál áður en Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna, Center for Disease Control, gefi út sams konar aðvörun en fylkisstjóri Flórida hefur óskað aðstoðar sérfræðinga stofnunarinnar til að halda aftur af þeirri tegund moskítóflugna sem bera zíka-veiruna milli manna.

Vírus þessi er sagður ástæða heilaskaða meðal fóstra í móðurkviði sem fæðast með mun minna höfuð en venjuleg börn.