Úr öskunni í eldinn hjá vænisjúkum bandarískum yfirvöldum. Fyrir bandaríska þinginu liggur nú tillaga um að krefjast samfélagsmiðlaupplýsinga frá öllum þeim er heimsækja vilja landið í framtíðinni.

Á þetta form gæti bæst ný spurning fljótlega um hvaða nöfn þú notar á samfélagsmiðlum. Skjáskot
Meðan milljónir látast árlega vestanhafs úr krabbameini, fátækt, bílslysum og ýmis konar alvarlegum glæpum en aðeins tugir sem láta lífið af hendi hryðjuverkamanna telur Bandaríkjastjórn samt eðlilegt að eyða milljörðum meira í öryggisráðstafanir gegn útlendingum en í menntamál, læknisþjónustu og löggæslu.
Nú vilja menn fá leyfi, með góðu eða illu, allra sem sækja vilja Bandaríkin heim til að fara yfir hvort viðkomandi hafi nú skrifað eitthvað miður gott um Kanann á samfélagsmiðlum og þær upplýsingar verða að berast áður en heimsókn hefst.
Nánar tiltekið gengur frumvarpið út á að túristar gefi upp nöfn sín á samfélagsmiðlum eins og Facebook, Twitter, Google+ og öðrum slíkum. Þannig megi fá skýrari mynd af þeim sem heimsækja landið en ekki síður koma í veg fyrir að „óprúttnir“ labbi innfyrir landamærin.
Haldi einhver að þetta eigi aðeins við um gesti frá Mið-Austurlöndum er það vitleysa. Gangi frumvarpið eftir verður farið fram á slíkt við alla erlenda gesti til Bandaríkjanna.
Á mannamáli þýðir þetta að þeir sem hafa niðrað Kanann með einhverju móti á fjasbókinni eða tístað eitthvað miður gott um George W. Bush, Barack Obama eða The Donald gætu einfaldlega verið stoppaðir á flugvellinum, þurft að færa rök fyrir máli sínu og eða snúið aftur til síns heima.
Frumvarp þetta verður tekið fyrir á bandaríska þinginu á næstunni og tæki gildi strax ef það fæst samþykkt.







