Flestir hafa fyrir löngu gefið upp á bátinn þann draum að sjá hina geysivinsælu rokkhljómsveit Guns N´Roses á sviði enda sveitin sú lagt upp laupanna fyrir margt löngu. En nú má vekja þann draum úr dvala.

Þessi sveit tímabundið risinn upp frá dauðum.

Þessi sveit tímabundið risinn upp frá dauðum.

Stærstur hluti hljómsveitarmeðlima hafa tímabundið endurvakið bandið frá dauðum og ætla að túra um Bandaríkin og Kanada þetta sumarið. Þar á meðal í nokkrum borgum sem eru í boði í beinu flugi frá Íslandi. Hafir þú hraðann á er hægt að krydda fína borgarferð með eðaltónleikum sveitarinnar án þess að fara yfir á kortinu.

Til dæmis með því að skjóta þér inn á vef Wow Air eða Icelandair og bóka flug til og frá Toronto í Kanada en þar spilar sveitin þann 16. júlí í Rogers Centre í miðborginni.

Miðar fást hér og kosta frá sex þúsund krónum og upp úr og þegar þetta er skrifað kemst einstaklingur fram og aftur án farangurs með Wow Air kringum þessa dagsetningum niður í 52 þúsund krónur eða með Icelandair og taka þá tösku með fyrir rúmar 70 þúsund á svipuðum tíma.

Ofan á þetta bætist gistikostnaður en á hótelvél okkar hér að neðan finnum við ágæta þriggja stjörnu gistingu miðsvæðis niður í 30 til 40 þúsund fyrir fimm nætur.

En harðkjarna aðdáendur setja engan skitinn hundrað þúsund kall fyrir sig ef njóta má Guns N´Roses beint af beljunni einu sinni. En ágætt að flýta sér því flugfargjöld sérstaklega eiga eftir að hækka talsvert fram að sumri.

Allt um Toronto hér.