Fararheill hefur árum saman gagnrýnt þá aumu þjónustu milljarðafyrirtækisins Icelandair að bjóða ekki upp á lengri leit að flugi á vef sínum en nokkra daga í senn. En kannski er það bara trix til að fá fólk til að bóka gegnum síma eða á skrifstofu flugfélagsins.hirðir

Þrátt fyrir að hafa bent á þennan leiða galla um fimm ára skeið heldur flugfélagið sig fast við sinn keip. Ætlir þú að leita að flugi á lægsta verði til einhvers áfangastaðar flugfélagsins máttu fletta um ár og aldir. Kannski eru það flettingar á vefnum sem Icelandair er svo annt um. Eða kannski, eins og við höfum einnig bent á, er ástæðan sú að með því að hafa bókunarferlið flókið eða tímafrekt eru meiri líkur á að fólk leiti á skrifstofu Icelandair eða bóki gegnum síma.

Það er nákvæmlega það sem Icelandair bendir erlendri konu á að gera í nýlegri fésbókarfærslu sem sjá má hér til hliðar.

„Please give us a call and a sales agent will be happy to assist you finding the best prices and dates,“ er ráðleggingin til þessa hugsanlega viðskiptavinar. Ekki stakt orð um að þegar þú bókar flug gegnum síma eða skrifstofu Icelandair bætast þrjú þúsund krónur aukalega ofan á fargjaldið!

Þetta fellur kyrfilega í flokk þess að vera þjónusta á botnmælikvarða.