Frá Bretlandi og Þýskalandi berast þær fregnir að ýmsir ferðaþjónustuaðilar hafi nú þegar lækkað töluvert verð á flugi og ferðum til Parísar. Engu slíku hér fyrir að fara.

Ferðafólki eðlilega mjög fækkað í París síðustu sólarhringa. Mynd Elliot Gilfix

Ferðafólki eðlilega mjög fækkað í París síðustu sólarhringa. Mynd Elliot Gilfix

Það tók ekki langan tíma. Hryðjuverkaárásir á föstudegi og þremur til fjórum dögum síðar eru Parísarferðir komnar á útsölu.

Vart þarf að geta sér til um ástæður þess. Margar ferðaskrifstofur og flugfélög buðu viðskiptavinum sínum sem höfðu bókað til Parísar að breyta dagsetningum eða hætta við ferðir sínar í kjölfar hryðjuverkanna í borginni á föstudagskvöld. Það er jú öllu erfiðara að njóta þessarar fallegu borgar þegar sorgarslæða hvílir yfir og vopnaðir hermenn vakta götuhorn. Ekki alveg þessi rómantíska helgarferð sem lagt var upp með.

Nett úttekt á fargjöldum Icelandair og Wow Air til borgarinnar sýnir að ekki hefur verð lækkað hjá þeim aðilum. Langi einhvern kannski til að sýna Parísarbúum stuðning með því að láta villimenn ekki ráða för verður sá eða sú að greiða að lágmarki 32 þúsund krónur fyrir flug fram og aftur í desember án farangurs hjá Wow Air og lágmark 46 þúsund fyrir sama pakka hjá Icelandair.

Sem sagt óbreytt verð frá því sem verið hefur.