Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn auglýsir nú sérstakt Berlínarlottó á vef sínum. Það þriggja nátta pakkar til Berlínar í nóvember og á allsæmilegu verði eða 69.900 krónur á mann. Það fer þó milli mála.

Allsæmilegt verð til Berlínar. Nema það finnst bara ekki.

Allsæmilegt verð til Berlínar. Nema það finnst bara ekki.

Eins og sjá má á auglýsingu ÚÚ hér til hliðar er um tvær mismunandi dagsetningar að ræða og auglýst verð á mann frá 69.900 krónum. Ritstjórn finnur það verð þó ekki á bókunarvef ferðaskrifstofunnar á umræddum dagsetningum. Þar kostar Berlínarferðin manninn að lágmarki 79.900 krónur eða tíu þúsund krónum meira.

Það um leið breytir sæmilegu verði í svona la-la verð. 140 þúsund fyrir túrinn er dálítið annað en 160 þúsund sé um tvo saman að ræða. Þá kemur hvergi fram á vef ÚÚ hvort farangur er með í pakkanum.

Þori fólk á eigin vegum er hægt að njóta Berlínar á mun ódýrari hátt en með ferðaskrifstofum. Skjáskot

Þori fólk á eigin vegum er hægt að njóta Berlínar á mun ódýrari hátt en með ferðaskrifstofum. Skjáskot

Í þessu sambandi er óhætt að hafa í huga að með Wow Air fæst fargjald fram og aftur til Berlínar í nóvember niður í 26 þúsund krónur án farangurs og litlu hærra með Airberlin. Tveir saman komast því til borgarinnar á eigin vegum fyrir 52 þúsund. Þá er sáraeinfalt að finna flott fjögurra stjörnu hótel á besta stað í borginni á hótelbókunarvef okkar hér að neðan niður í 30 þúsund krónur eins og sjá má hér til hliðar. Tveir saman gætu því fræðilega dúllast þrjár nætur í Berlín á eigin vegum fyrir alls 79.900 krónur ef út í það er farið.

En þá er auðvitað engin fararstjóri með né heldur það öryggi sem fylgir því að ferðast gegnum ferðaskrifstofu sem margir kjósa sem ferðast.

Í öllu falli er lágmarksþjónusta að auglýst verð finnist á vef Úrval Útsýn þegar fólk hyggst bóka. Annað kallast vörusvik.