Margt undir sólinni er verra en renna sér niður skíðabrekkurnar í smáríkinu Andorra. Þar gefst nú tækifæri að skíða í vikutíma meðan gist er á fimm stjörnu hóteli með hálfu fæði á 170 þúsund krónur á mann og skíðapassi innifalinn.

Kjörin skíðasvæði um allar trissur í Andorra.

Kjörin skíðasvæði um allar trissur í Andorra.

Pakkinn er í boði frá nokkrum stöðum í Bretlandi frá og með desember og kostar þaðan 128 þúsund krónur gegnum Secret Escape ferðamiðilinn. Ofan á það leggst svo fargjald til Bretlands og heim aftur. Farangur upp að 20 kílóum fylgir með í pakkanum.

Fyrir eðalgóða skíðaferð á fimm stjörnu lúxushóteli flokkast þetta ekki sem há upphæð en við komumst næsta lítið héðan á góð erlend skíðasvæði á ódýran hátt nema mixa saman eigin pakka og grípa þau tilboð sem gefast.

Þessu tengt má nefna að enn má gera fínustu kaup í Andorra þó ekki sé það skattlaust land ennþá eins og lengi var raunin. Álagning á vörur og þjónustu þó óvíða meiri en 4% og enginn skortur á verslunum.

Allt um þetta hér.