Ferðaskrifstofan GB ferðir er þessa stundina að auglýsa skíðaferð á hið heimsþekkta skíðasvæði Vail í Coloradó í Bandaríkjunum. Þar auglýst að skíðaferðin kosti manninn 279 þúsund krónur. Gallinn bara sá að þetta er ekki skíðaferð.

Skíðaferðir stendur hér skýrum stöfum. En það ekki alveg rétt og satt. Skjáskot

Skíðaferðir stendur hér skýrum stöfum. En það ekki alveg rétt og satt. Skjáskot

Ritstjórn Fararheill er fyrirmunað að skilja hvers vegna ferðaskrifstofur komast upp með blekkingar í auglýsingum aftur og aftur og aftur og aftur. Vail-ferð GB ferða gott dæmi því hér alls ekki um skíðaferð að ræða heldur ferð á skíðasvæði. Sem er allt annar hlutur.

Nánar tiltekið þá samanstendur „skíðaferð“ ferðaskrifstofunnar af flugi til Denver og heim aftur og gistingu á fínu hóteli í átta nætur. That is it! Engin skíði meðferðis, engir skíðapassar, engar ferðir á skíðasvæðið. Til samanburðar er ágætt að muna að okkur vitandi er enginn aðili að bjóða golfferðir með engu golfi. Hvers vegna gildir annað um skíðaferðir?

Kannski skiljanlegt að þetta sé sett upp með þessum hætti því ef við bætum ferðum til og frá skíðasvæðinu plús skíðapassa í vikutíma inn í auglýst verð þá kostar túrinn töluvert meira en 279 þúsund á kjaft. Við fáum út 374 þúsund krónur per haus eða 749.788 þúsund á hjón eða par. Með mat og smá dúlleríi er þetta auðveldlega átta hundruð þúsund króna ferð. Plús náttúrulega sú staðreynd að Vail er í tæplega þriggja stunda fjarlægð frá Denver svo að það bíður miður indæll rúntur um leið og lent er og áður en lagt er í hann aftur.

Sem sagt fjarri því eins spennandi kostur og það kannski hljómar í auglýsingunni. En á hitt verður reyndar að líta líka að Vail er leiksvæði Hollywood-stjarna og mikilmenna. Þar má til dæmis líklega rekast á eilífðarforsetann okkar með ísraelskri spúsu sinni sem aldrei hefur greitt skatta á Íslandi. Kannski tækifæri til að ræða það yfir rauðvíni og steikum í Vail.