Væri ekki súrast í broti að kaupa sólarferð fyrir familíuna um miðjan ágúst og komast svo að því að nákvæmlega sami pakki kostar 60% minna tveimur vikum síðar í byrjun september?

Alicante á 60% afslætti? Það gengur ef þú ferðast í september í stað ágúst.

Alicante á 60% afslætti? Það gengur ef þú ferðast í september í stað ágúst.

Þér kann að þykja þetta tíðindi mikil fyrir utan mikla fjármuni til spillis. Raunin er þó sú að þetta er nákvæmlega það sem hefur átt sér stað undanfarin ár og áratugi. Það sannar meðal annars glæný bresk könnun sem fyrirtækið Netvouchercodes hefur látið gera.

Ekki halda að þetta sé einskorðað við Bretana. Óvenju mikið af pakka- og afsláttarferðum hafa verið til sölu á tilboðsverði hérlendis frá miðjum ágúst. Nákvæmlega sama tímapunkti og börnin hefjast skólagöngu á ný. Það bar meira að segja á útsölum á ákveðnum ferðum hjá ákveðnum aðilum hérlendis. Óhætt er að telja útsölur hjá ferðaskrifstofum hérlendis á fingrum annarrar handar síðan Wright bræður fengu byr undir vængi fyrstu flugvélarinnar.

Sextíu prósenta lækkun er dramatísk verðlækkun en samkvæmt könnun Bretans reyndist vera 43% lækkun á fjögurra stjörnu vikupakka á Ibiza frá síðustu viku ágústmánaðar til þeirra fyrstu í september. Pakkaferðir til Mallorca almennt 28% ódýrari fyrstu viku september en í ágúst og sömuleiðis pakkaferðir til Korfu og Krítar 27 prósentum ódýrari.

Þegar haft er í huga að ferðir og sérstaklega fjölskylduferðir kosta fleiri hundruð þúsunda og jafnvel yfir milljón krónur er auðvelt að átta sig á hversu stórar fjárhæðir um er að ræða geti fólk hinkrað með ferðir fram í september. 28 prósent af ferð sem kostar til dæmis 600 þúsund krónur er 168 þúsund krónur. Það munar sannarlega um minna fyrir flesta.