Næstu vikurnar geta áhugasamir um lengingu sumars komist beinustu leið til Mallorca á Spáni gegnum ferðaskrifstofuna Vita á fínu tilboðsverði. 39.950 krónur fram og aftur á manninn.

Eitthvað rotið í herbúðum Vita ferða.

Tilboðsverð á flugferð til Mallorca og heim aftur í september

Hjá Vita kalla menn þetta 2 fyrir 1 tilboð. Sem segir alla söguna um hversu gróflega er okrað á flugferðum til Mallorca á öðrum tímum. En batnandi ferðaskrifstofum er best að lifa og það er ólíkt ljúfara að sleikja sól á eynni á helmings afslætti en ekki.

Tilboðspakkinn er í boði á öllum dagsetningum til Mallorca það sem eftir lifir sumars/hausts en síðasti túr í boði er þann 24. september.

Engin spurning er um að þú verðskuldar meira frí en þú hefur þegar tekið og ættir að drífa þig að bóka. Lífið er of stutt til að láta ekki undan freistingum 🙂

Svo gæti bara vel verið að það borgaði sig duglega að bóka hótel á þeirri hótelbókunarvél sem er tvöfaldur heimsmeistari samkvæmt World Travel Awards…

[vc_masonry_grid max_items=“6″ grid_id=“vc_gid:1441225224919-73f21535-baac-9″ taxonomies=“355″]