Það er fyrir alllöngu orðið uppselt í pakkaferðir á landsleik Hollands og Íslands á Evrópumótinu í knattspyrnu sem fram fer í Amsterdam í vikunni. En það er enn hægt að fá flug og miða á flesta leiki íslenska körfuknattleikslandsliðsins sem keppir fyrsta sinni á stórmóti um næstu helgi.

Landsliðið í Berlín. Strákarnir gætu eflaust notað fleiri hvatningarhróp frá áhorfendabekkjum. Mynd KKÍ

Landsliðið í Berlín. Strákarnir gætu eflaust notað fleiri hvatningarhróp frá áhorfendabekkjum. Mynd KKÍ

Landsliðið okkar er ekki að mæta neinum blöðruhausum í sínum undanriðli. Þýskaland með Dirk Nowitzki í fararbroddi er fyrsti mótherjinn þann 5. september og það á heimavelli þeirra þýsku. Miðar á þann leik löngu uppseldir. En ekki leiðinlegt að sitja einhvers staðar nálægt á góðri knæpu í fánalitunum ef landsliðið okkar skyldi nú velgja sigurvissum Þýskurum vel undir uggum.

Engin þörf á barsetu í öðrum leikjum landsliðsins. Gegn Ítölum strax daginn eftir. Gegn Serbíu þriðjudaginn 8. september, Spánverjum á miðvikudegi og Tyrkjum svo á fimmtudeginum. Allt eru þetta toppþjóðir í körfuknattleik í Evrópu og litla Ísland gæti eflaust þegið fleiri hvatningarhróp úr stúkunni. Miðar á þessa leiki alla fást niður í 2.400 krónur á staðnum eða gegnum miðasölu á netinu hér.

Við fregnuðum af nokkrum einstaklingum sem um helgina gáfu ferð til Berlínar upp á bátinn. Fyrst og fremst vegna þess að flestar flugferðir Wow Air fram að mótinu eru uppseldar en líka sökum þess að þær flugferðir sem enn eru lausar og henta kosta feitan skilding.

Við skoðun reynist það rétt. Uppselt er til Berlínar með Wow Air nema farið sé 2. september og langi fólk að sjá alla leiki Íslands áður en haldið er heim kostar heimferðin 30 þúsund krónur. Rúm vika í Berlín kallar nú á aðeins meira en nýjar nærur og sokka svo taska verður að vera með í för. Þá er reikningur Wow Air kominn í 70 þúsund krónur. Það er of mikið fyrir flug til Berlínar.

En það er önnur lausn og betri. Airberlin á enn töluvert af lausum sætum til Berlínar og flug með þeim út þann 4. september og heim aftur þann 13. september fæst niður í 52 þúsund þegar þetta er skrifað. Taska innifalin í þeim pakka.

Á hótelvef Fararheill finnst þegar þetta er skrifað þriggja stjörnu gisting nokkuð miðsvæðis niður í 147 þúsund krónur þessar níu nætur. Deilt með tveimur gerir það rúmar 73 þúsund krónur.

Heildarkostnaður á mann við Berlínarferð þessa níu daga sem Ísland etur kappi á sínu fyrsta stórmóti í körfuknattleik þannig ekki nema rétt rúmar 120 þúsund krónur. Sem gerir heilar þrettán þúsund krónur per dag og fer vart niður sem ýkja dýr túr.

Drífa sig bara. Lífið er ekkert að lengjast 🙂