Það vita allir sem skroppið hafa inn á bókunarvef Icelandair síðustu misserin að það er nánast heimsviðburður að finna fargjöld vestur um haf og til baka undir hundrað þúsund krónum. Verð yfirleitt töluvert hærra en það.

Ahhhh. Sólin vermir vanga alla daga næsta vetur í Flórída.
Undarleg hagfræði það því þotueldsneyti, einn stærsti útgjaldaliður flugfélaga, hefur lækkað um helming á sama tíma án þess að þess sjáist nokkur merki hjá flugfélaginu.
Þess vegna ríður á að tryggja sér hina langþráðu vetrarferð til Orlando á Flórída núna en ekki bíða fram á haust þegar allir eru að spá í því sama; sól og hita á kroppinn og kaffi og kleinu með sólbrenndum Ingva Hrafni.
Úttekt Fararheill leiðir í ljós að meðan landinn er upptekinn af því að spá í sólarlandaferð nú í sumar eða haustferð í besta falli eru fæstir með huga við næsta vetur. Sem að líkindum verður jafn slæmur og nýliðinn vetur.
Á bókunarvef flugfélagsins má enn finna fargjöld niður í 71.875 krónur fram og til baka á sardínufarrými í desember, janúar og febrúar, Lægsta fargjald í nóvember kostar manninn 80.775 krónur og langi fólk í október þarf að taka 94.575 krónur út úr bankanum. Stór munur á 71 þúsund og 94 þúsund þegar margfalda þarf með pari eða heilli fjölskyldu.
Ekki síðri plús að bóka hótelið á staðnum með slíkum fyrirvara. Sömuleiðis þar hækkar verð eftir því sem nær dregur. Skyndileit á hótelvef Fararheill leiðir til dæmis í ljós að hægt er að leggja haus á kodda á fínu fjögurra stjörnu hóteli niður í SEX ÞÚSUND KRÓNUR sé bókað með margra mánaða fyrirvara.
Samanlagður sparnaður með því að bóka með löngum fyrirvara getur skipt tug- og jafnvel hundruð þúsund ef heil fjölskylda er að ferðast saman.

En ekki taka okkar orð fyrir. Kíkið sjálf og endilega berið saman við það sem aðrir bjóða.







