Það vita lesendur vorir að Fararheill hefur ítrekað sett spurningarmerki við að Wow Air kalli sig lágfargjaldaflugfélag. Margvíslegar ástæður fyrir því en helstar þó að oft á tíðum er flug með flugfélaginu á pari við og jafnvel dýrara en með hefðbundnum flugfélögum.

Samanburður Fararheill á fargjöldum Wow Air og easyJet til Alicante leiðir ýmislegt í ljós

Samanburður Fararheill á fargjöldum Wow Air og easyJet til Alicante leiðir ýmislegt í ljós

Þar sem við lærðum að það er ljótt að ljúga eða plata strax í leikskóla, sem greinilega er annar leikskóli en starfsfólk auglýsingastofu Wow Air notaði, fannst okkur ráð að sýna svart á hvítu hver munurinn er á miðaverði alvöru lággjaldaflugfélags og þeirra sem kalla sig lággjaldaflugfélag.

Það gerðum við með því að bera saman fargjöld heilan mánuð hjá Wow Air annars vegar og easyJet hins vegar og finna meðalverð þann mánuðinn. Með þeim hætti má sjá með gleggri hætti almennt verðlag og ekki láta stöku afsláttar fargjöld eða allra dýrustu fargjöld blekkja.

Til að samanburðurinn yrði sem eðlilegastur völdum við mánuð langt fram í tímann, október 2015, og völdum algengustu flugleið frá Íslandi, til London. Við reiknuðum flug aðra leið með sköttum, gjöldum hjá báðum aðilum og bættum við sérstöku kreditkortagjaldi sem easyJet setur á líka. Enginn farangur þó. Hér skal hafa í huga að fargjöld breytast ört en úttektin er gerð kl. 14.30 þann 23. maí 2015 samtímis hjá báðum aðilum.

Samantektin, eins og sjá má á meðfylgjandi töflu leiðir hreint makalausan verðmun í ljós. Það munar hvorki meira né minna en TÍU ÞÚSUND KRÓNUM á flugi aðra leið út með Wow Air og easyJet breska flugfélaginu í hag. Allra lægsta fargjald Wow Air þann mánuð kostar 10.098 krónur en lægsta fargjald easyJet 8.232 krónur. Dýrasta fargjald Wow Air kostar 49.998 krónur en dýrasta fargjald easyJet 36.605 krónur.

Lesendur sjá með þessu mun eðlilegri mun en ef við tækjum aðeins lægstu fargjöld í boði þennan mánuð. Þá er munurinn aðeins tæpar tvö þúsund krónur sem segir ekki neitt þar sem bæði lægstu fargjöld flugfélaganna beggja eru aðeins í boði á einni dagsetningu allan október.

En sé meðalverð allan mánuðinn tekið saman kostar flug aðra leið með easyJet 14.774 krónur en meðalverð hjá Wow Air 24.998 krónur. Það er ótrúlegur munur hjá tveimur flugfélögum sem bæði kalla sig lággjaldaflugfélög.