Þann fjórða maí síðastliðinn opnaði formlega nýjasti afþreyingargarður Orlando, svokallað Auga Orlando, risastórt parísarhjól á borð við það sem vinsælt er í London, auk vaxmynda- og náttúrulífssafns.

Hafðu augað hjá þér í Orlando. Mynd Orlando Eye
Eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis við smíði parísarhjólsins því fyrir tveimum vikum var hjólinu lokað skyndilega vegna viðgerða. Eigendur ekki viljað taka neina áhættu og lokað strax aftur meðan mannvirkið er prófað enn frekar. Hjólið opnaði að nýju um síðustu helgi.
Auga Orlando er örlítið smærra en Auga London en ólíkt þessu síðarnefnda má sjá vel yfir náttúru Flórída frá toppi augans sem nær hæst 121 metra upp í loft. Sömuleiðis er það fín leið fyrir þá sem aldrei hafa verið hér áður en gera sér grein fyrir hvernig landið liggur. Eða sjá svæðið í myrkri en opið er hér öll kvöld og helgar langt fram á kvöld. Miðaverð er 2.400 krónur fyrir fullorðinn einstakling.
Augað er til staðar ásamt vaxmyndasafni Madame Tussauds og Sea Life sjávarsafninu við hina þekktu I-Drive götu. Leiðbeiningar samt óþarfar. Augað sést víða að.







