Vortilboð spænska lággjaldaflugfélagsins Vueling er í sérstakari kantinum. Þeir eru að bjóða tvo-fyrir-einn pakka á völdum flugferðum sínum svo lengi sem ferðast er fyrstu þrjár vikurnar í júní.

Skemmtilegt framtak en kannski helst til lítið á að græða fyrir Íslendinga.
Enn eitt dæmið um hversu sniðugur ferðamánuður júní er í samanburði við júlí og ágúst. Það eru svo fáir á faraldsfæti þann mánuðinn meðan allir hópast í ferðum síðar í sumar og munur á flugi, gistingu og afþreyingu getur skipt tug- eða hundruð þúsund króna fyrir fjölskyldur.
Reyndar má færa fleiri góð rök fyrir að júní sé mun sniðugari mánuður til sumarleyfa fyrir Íslendinga en júlí eða ágúst. Til dæmis sú staðreynd að júní er oft upp og niður í veðurfari hérlendis meðan fastsetja má með nokkurri vissu að bæði hitastig og sólarstundir í júlí eða ágúst eru við flestra hæfi hér heima þó auðvitað séu á því undantekningar.
Að þessu sögðu er Vueling því miður ekki að bjóða tvo-fyrir-einn til og frá Íslandi og því kannski langsótt að notfæra sér tilboð þeirra. Og þó. Sé búið að bóka flug til Lyon þennan tíma er óvitlaust að skjótast í rúma klukkustund yfir til Sevilla og til baka í tvo, þrjá daga eða svo. Sé fólk að spóka sig á Mallorca er líka hægt að fljúga yfir á meginland Spánar til Valencíu eða Malaga einn til tvo daga til að breyta aðeins um umhverfi.
Allt hægt ef vilji er fyrir hendi og óhætt að hafa í huga að flug með Vueling er oftast nær hræbillegt. Nánar um þetta hér en tilboðið gildir til 25. maí.







