Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian er líka að henda nokkrum ferðum sínum á útsölu þennan daginn og reyndar gilda tilboð þeirra fram til miðvikudags.

Ódýrt út með Norwegian
Sem fyrr eru mörg þeirra tilboða æði hreint freistandi fyrir ferðaþyrsta með lítið inni á bankabókinni. Flug aðra leið frá Osló til Alicante niður í sjö þúsund krónur og svipuð upphæð til Antalya, Madríd og Rómar svo fátt sé nefnt.
Súperleið til að komast ódýrt út í heim því flug héðan til Osló fæst líka á lágu verði eða niður í tíu þúsund krónur fram og aftur þegar best lætur. Sameina þessa tvo pósta, eyða svo degi eða tveimur í Osló og strax komið firnagott ferðalag á góðu verði svo lengi fólk hafi þor til að gera hlutina sjálf.
Allt um málið hér.







