Við höfum sagt þetta áður og erum óhrædd að endurtaka það: engin íslensk ferðaskrifstofa hefur metnað á pari við Trans-Atlantic. Nú er þessi litla landsbyggða-ferðaskrifstofa að henda í Brasilíuferð á Íslendingaslóðir.

Miðborg Curitiba í Brasilíu. Þar verður hægt að spássera um í september ef vil.

Miðborg Curitiba í Brasilíu. Þar verður hægt að spássera um í september ef vil.

Flott framtak en Fararheill hefur einmitt verið að benda fólki á að þó langt þurfi að fara mun enginn, ítrekum ENGINN, koma heim úr slíkri ferð með neitt nema húrrandi góðar minningar og margs vísari um allt og ekkert.

Hér er auðvitað verið að tala um borgina Curitiba þar sem fátækir og örvinglaðir Íslendingar fundu sér samastað fyrir margt löngu þegar illa eða ekki var mjög líft á klakanum norðan í ballarhafi. Lesa má um Curitiba í þaula hér.

Ferð Trans-Atlantic er farin í september og stendur í tæpar tvær vikur. Kostnaður á mann miðað við tvo saman er reyndar ekki alveg á allra færi eða 644.724 krónur sem gerir rétt tæplega 1,3 milljón króna fyrir tvo saman.

Auðvitað má græja ferð til Curitiba á mun ódýrari hátt en hér er í boði en á móti kemur að hér er leiðsögn innifalið og ekki er aðeins hangið í Curitiba heldur og nágrannasveitir og borgir heimsóttar líka.

Til eftirbreytni að bjóða upp á slíkt að okkar mati. Meira hér.