Ein véla Icelandair, Herðubreið, er nokkuð skemmd eftir að eldingu laust niður í vélina skömmu eftir flugtak frá Keflavík í gær en vélin var á leið til Denver í Bandaríkjunum.

Eldingar valda sjaldan tjóni á farþegavélum en til eru undantekningar á því.
Atvikið skelfdi allmarga farþega samkvæmt grein á vef Denver Post sem birtir mynd af vélinni þar sem sjá má nokkuð stórt gat á nefi vélarinnar.
Miðillinn greinir ennfremur frá því að enginn hjá Icelandair hafi viljað tjá sig um atvikið en allmargir farþegar undruðust ákvörðun flugstjórans að halda förinni áfram alla leið til Kolóradó eftir að skellurinn varð en flugið var ekki hálfnað þegar eldingunni laust niður.
Algengt er að farþegavélar verði fyrir eldingum og vélar allar hannaðar með það í huga að það hafi engin áhrif á flughæfni. En sjaldgæft er að skemmdir verði í leiðinni.







