Enn á eftir að reka smiðshöggið á algjörlega frjáls ferðalög til og frá Kúbu frá Bandaríkjunum en það hefur ekki stöðvað bandarísk fyrirtæki sem slefa út í bæði yfir þessum glænýja sumarleyfisstað við bæjardyrnar.

Kúba hin gamla gæti fljótt fengið andlitslyftingu ef bandarískir peningar fá aðgang. Mynd Anton Noselov
Fararheill hefur áður sagt frá því að bandarísk kreditkort og kort gefin út af bandarískum kortafyrirtækjum eins og American Express og öðrum eru nú loks nothæf á Kúbu eins og annars staðar í veröldinni.
Nú bætist íbúðaleigan vinsæla Airbnb í hópinn. Gegnum þann aðila er nú hægt að leita að íbúðum til leigu um eynna. Úrvalið reyndar takmarkað mjög og þetta er byrjun og væntanlega gleðiefni fyrir alla þá sem ekki vilja hafa of mikið fyrir hlutunum.
Á hinn bóginn er þetta líklega fyrsta skrefið að dauðadómi yfir casas particulares sem svo eru nefndar en það eru heimagistingar sem boðist hafa ferðafólki um árabil á Kúbu og þykja langbesta leiðin til að kynnast landi og þjóð. Kúbverjar eru heilt yfir fátækir og enginn vafi leikur á að mörgum mun þykja það eftirsóknarvert að leigja út íbúðir sínar og heimili fyrir bandaríska dollara eftirleiðis.
Ritstjórn Fararheill fyrir sitt leyti ekki í vafa um að Kúba með tilkomu Bandaríkjamanna verður svipaður áfangastaður og Jamaíka, Arúba, Dóminíska lýðveldið eða jafnvel Puerto Rico eftir 20 ár eða svo. Það tekur Kanann yfirleitt ekki langan tíma að komast yfir helstu og bestu svæðin og loka svo heimamenn út.







