Fararheill fann að því fyrir skömmu að fjölmiðlar láta draga sig á asnaeyrum þegar kemur að fréttum frá ferðaskrifstofunum. Aðeins þrjár vikur eru síðan fullyrt var að sala á sólarlandaferðum væri súpergóð og aldrei verið betri síðan fyrir Hrun. En hvers vegna eru þá útsölur út og suður um allt?

Eitt af fáum fyrirtækjum heims sem virðist lækka verð á sólarlandaferðum þegar salan er sem best. Skjáskot

Eitt af fáum fyrirtækjum heims sem virðist lækka verð á sólarlandaferðum þegar salan er sem best. Skjáskot

Útsölur kannski sterkt orð en nokkrar ferðaskrifstofurnar, til dæmis Úrval Útsýn og Plúsferðir sem báðar eru í eigu svindlarans Pálma Haraldssonar, eru að slá tugþúsundir af ferðum sínum í sumar.

En hvaða fyrirtæki selur vöru á drjúgum afslætti ef sala á hefðbundu verði er framar vonum? Þarf ekki eitthvað að skoða yfirmann slíks fyrirtækis? Hugmyndin er jú að skila arði til eigenda.

En nú er að ljúka sérstökum „sólardögum“ Úrval Útsýn og framundan er „sólarsprettur“ dótturfyrirtækisins Plúsferða. Í báðum tilvikum hægt að fá ferðir til Spánar á þetta 10 til 40 þúsund króna afslætti.

Þarf vart að leggja haus í bleyti lengi til að ímynda sér að „moksalan“ fyrir þremur vikum síðan hafi aðeins verið sölutrix. Og fákunnandi blaðafólk lætur platast og platar lesendur í leiðinni.