Lággjaldaflugfélagið Norwegian heldur upp á enn einn Supersalg dag sinn þar sem þeir gjaldfella slatta af þegar hræbillegum fargjöldum sínum. Hafi fólk nennu til er hægt að komast á spænskar eða portúgalskar sólarstrendur aðra leið niður undir 20 þúsund krónur.

Sem fyrr má spara fúlgur fjár með Norwegian en það kostar alltaf millilendingu.
Flugfélagið norska, sem meðal annars flýgur hingað til lands reglulega frá Osló, sker gróflega fargjöld sín niður um 15 til 20 prósent á útsöludögum. Þar sem fargjöld þeirra almennt eru svo lág er þetta kannski enginn stórafsláttur en kemur efalaust samt mörgum til góða.
Skoðun leiðir í ljós að í júní og júlí komumst við til Osló héðan fyrir um tólf þúsund krónur lægst. Þar sem allra lægsta fargjald Norwegian til staða á borð við Malaga, Alicante og Algarve er í boði niður í sex til sjö þúsund er því hægt að komast aðra leið á sólarströnd undir 20 kallinum á mann. Það er bara frábært verð en kostar millilendingu í Osló og mögulega gistingu þar líka. Fólk verður að meta hvort það er þess virði.







