S pænska eyjan Mallorca enn einu sinni komin á dagskrá hjá innlendum ferðaskrifstofum og vekur furðu að ferðir þangað detti út og inn eins og jójó á sterum á þriggja ára fresti eða svo. En hvað kostar nú að njóta lífsins á eynni? Er enn hræódýrt að eyða tíma þar.

Mun ódýrara að lifa og njóta í Palma en í Reykjavik. Mynd Santi

Mun ódýrara að lifa og njóta í Palma en í Reykjavik. Mynd Santi

Svarið við því er bæði já og nei. Það er vissulega ódýrara að kaupa þar inn mat og drykk fyrir þau ykkar sem leigja sér íbúð eða villu eða gista á hóteli án fæðis. Mallorca er með þeim hætti einn allra ódýrasti sumaráfangastaðurinn.

Það er líka mun ódýrara að fara út að borða hér miðað við heimalandið en það segir ekki mikið enda dýrt að borða úti á Íslandi. Það er hins vegar töluverður verðmunur á góðri máltíð eftir því hvar fólk dvelst. Með öðrum orðum er nokkuð dýrara yfir annatíma að sumarlagi að borða úti á allra vinsælustu strandstöðum eins og Alcudia en það er í höfuðborginni Palma. Það helgast af færri stöðum sem geta lagt vel á matinn því eftirspurn er mun meiri en framboð.

Að því sögðu er Palma sjálf mun ódýrari kostur en Reykjavik og það í næstum öllu tilliti eins og sjá má hér að neðan.

Miðað við gengi krónu gagnvart evru í  janúar 2023 er verðlag í verslunum í Palma um 40 prósent lægra en í verslunum í Reykjavík. Dæmin mýmörg en hér kosta vinsælar Levi´s gallabuxur kringum tólf þúsund krónur, vinsæl týpa af Nike hlaupaskóm rúmar níu þúsund krónur og ágæt jakkaföt frá lúxusmerkjum frá 30 þúsund krónum og upp úr.

Máltíð á góðum veitingastað í Palma er um það bil helmingi ódýrari en sams konar máltíð í Reykjavík. Máltíð á ódýrum veitingastað kostar milli tólf hundruð og sextán hundruð krónur og þríréttað á betri veitingastað fyrir tvo ætti að skjótast um eða yfir sex þúsund krónur með víni. Stór bjór á veitingastað/bar fæst á 300 til 450 krónur.

Ferð með strætisvagni innan borgar í Palma kostar 220 krónur og startgjald leigubíla um sex hundruð krónur. Bensínlítrinn fæst á 180 kall fyrir þá sem sjá hag í því að leigja bílaleigubíl.

Á háannatíma í júlí og ágúst er ekki fjarri lagi að bæta 10 til 20 prósent ofan á þessar tölur á velflestum vinsælum strandstöðum Mallorca. Ekki viss hvað þú átt af þér að gera í Palma? Kíktu á vegvísi okkar um borgina hér.