Sífellt fleiri hérlendis sem erlendis ferðast um á eigin vegum og benda sumar erlendar kannanir til að fjöldi þeirra sem það gera sé allt upp í 50 prósent ferðamanna.

Hljómar einfalt ekki satt? En raunin er önnur.

Hljómar einfalt ekki satt? En raunin er önnur.

Það er sá hópur fólks sem flug- og hótelleitarvélar berjast um og það af hörku en fjöldi slíkra leitarvéla skiptir hundruðum allt í allt og fjöldinn segir allt um hve gróðavænlegur sá bransi er. Hver bókun gegnum slíka vefi færir fyrirtækjunum ákveðna þóknun og í sumum tilfellum afar drjúga þóknun. Dittó fyrir ferðaþjónustuaðila sem gera samninga við ákveðnar bókunarvélar.

Sumir þeirra auglýsa grimmt „allra lægsta verð“ og sumir ábyrgjast líka að svo sé. En þar liggur einn hundur vel grafinn.

Meðal þeirra sem „ábyrgjast“ lægsta verð er bókunarvefur Booking. Það er sá vefur sem Icelandair, Dohop, Wow Air og Hótelbókanir.is auglýsa villt og galið og allir þeir sem ekki lesa Fararheill nota eflaust mikið. Það er nefninlega svo að æði margir taka gott og gilt allt það sem kemur frá stórum fyrirtækjum þrátt fyrir að sagan bendi til annars.

Við köllum þetta Byko-trixið en byggingavörurisinn, sem ítrekað hefur gerst brotlegur við lög, auglýsir verðvernd sem virkar á sama hátt og að ábyrgjast lægsta verðið.

Það virkar þannig að þú kaupir vöru/ferð/gistingu og finnir þú sömu vöru/ferð/gistingu á lægra verði annars staðar færðu endurgreitt. Hljómar einfalt og gott ekki satt?

En hefur þú einhvern tímann eytt meiri tíma að leita að gistingu eða flugi erlendis EFTIR að þú ert búin að bóka? Svarið er mjög líklega nei. Það er nógu tímafrekt að græja gistingu og flug þó ekki fari nokkur kvöld á eftir í viðbót í tímans rás. Enginn leitar lon og don að einhverju sem KANNSKI sparar einhverja þúsundkalla.

Og það treysta menn á hjá Booking. Vegna þess að þó oft finnist þar allra lægsta verð þá fer fjarri að það sé algilt. Kannski í svona 30 til 40 prósent tilfella er Booking að bjóða lægsta verð á gistingu.

Sjáðu skjámyndina hér að neðan. Hér var leitað að næturgistingu á fjögurra stjörnu hóteli í Feneyjum:

cropp

 

Þarna eru átján tilboð á lægra verði en það lægsta sem finnst á Booking á nákvæmlega sams konar herbergi. Verðmunurinn á lægsta verði Booking og lægsta verði sem finnst er 5.975 krónur fyrir eina nótt. Verðmunur á vikudvöl hoppar upp í rúmlega 40 þúsund.

Munar þig eitthvað um það? Ætlarðu þá að eyða tíma í leit, skrifa bréf, prenta út skjámynd af betra tilboðinu og senda á Booking.com í Hollandi eða Bandaríkjunum? Bíða svo í einhverjar vikur ef svar fæst?

Hættu að láta blekkjast. Að ábyrgjast besta verð stenst engan samanburð við að bjóða besta verð. Og það gerum við 🙂 Prófaðu bara…