Margir þekkja orðið vel til Google Streetview sem leyfir nettengdum hvarvetna í veröldinni að þræða stíga, vegi og götur borga, bæja og landa með tölvu eina að vopni. En það er fleira sem hægt er að skoða á þann máta. Til dæmis eitt nýjasta skemmtiferðaskip heims.

Quantum of the Seas er eitt nýjasta og stærsta skemmtiferðaskip heims. Mynd Margiit Francus
Skipafélagið Royal Caribbean bryddar nú upp á þeirri nýbreytni að bjóða upp á Google Shipview ef svo má að orði komast en með þeim hætti má þvælast nánast um allt á einu af þeirra allra nýjustu skipum Quantum of the Seas.
Með þeim hætti kynna sér mun ítarlegar en ella hvort þarna sé eitthvað spennandi og eða nákvæmlega hvernig káeturnar líta út þegar ekki er búið að snyrta þær og fegra fyrir flotta litabæklinga.
Víst er að einhverjir taka andköf yfir svítum skipsins sem standa svítum Las Vegas lítið að baki. Innisundlaugarsvæðið heldur ekkert slor og þaðan af síður er leiðinlegt að hitta fyrstu vélrænu barþjónana.







