Samhliða örum vexti Icelandair allra síðustu árin hefur þjónustustig flugfélagsins versnað jafnt og þétt og gildir þá nánast einu hvaða flugeinkunnavefur er skoðaður svo ekki sé minnst á allt að 30 daga bið eftir aðstoð eftirá. En kannski er flugfélagið komið í alvarlega naflaskoðun.

Þessi mun mæla með Icelandair við alla vini og kunningja um alla framtíð. Einfalt ekki satt?
Nýleg færsla á fjasbókarvef flugfélagsins er óvenjuleg. Þar tekur sig til maður einn og dásamar þjónustu flugfélagsins þegar óveður setti strik í flugreikninginn hér fyrir skömmu. Honum fannst nógu mikið til um þjónustuna að taka frá tíma til að skrifa um það á vefinn. Sem er ekki lítið afrek í tímafrekum heimi.
Í þessu tilfelli væntanlega þjónusta sem þurfi að veita án þess að hugsa sig um og það virðist flugfélagið hafa gert möglunarlaust og af fagmennsku.
Sem er óravegu frá annarri færslu sem birtist á vef Icelandair hér fyrir nokkrum vikum. Þar var um eftirá þjónustu að ræða og eins og sést á skjáskotinu er viðkomandi enn að bíða eftir aðstoð SEX MÁNUÐUM eftir að farangur týndist með flugfélaginu.

Fáránleg bið og engin þjónusta. Þessi mun níða Icelandair í svaðið um aldur og ævi. Skjáskot
Á síðasta ári varð Icelandair í 81. sæti yfir þau flugfélög sem bestu þjónustu veittu árið 2014 en hafði þá hækkað sig upp úr sæti 88. árið 2012. Flugfélög á borð við Alitalia, Aeroflot og TAP sem yfirleitt fá ekki merkilega dóma voru töluvert ofar í töflunni.
Á sama tíma hefur meðaleinkunn Icelandair á einkunnavefnum Skytrax versnað hægt og rólega nánast linnulítið frá árinu 2010.
Fararheill hefur áður og ítrekað fjallað um hversu auðvelt og ódýrt það er að bæta þjónustu því það er óumdeilt að okkar mati að góð eða framúrskarandi þjónusta er langbesta og langódýrasta auglýsing sem nokkuð fyrirtæki getur fengið. Stephen hér að ofan mun mæra flugfélagið við alla sína vini næstu vikur, mánuði og kannski ár og kostnaður Icelandair vegna þess aðeins lipurð og kannski eitthvað klink.
Á hinn bóginn mun Maria sverta fyrirtækið við alla sína vini og ættingja til það til æviloka og ekkert sem flugfélagið getur gert nú breytir því. Fyrir týnda tösku sem í hæsta lagi kostar einhverja tíu þúsund kalla og fyrirtækið er líklega tryggt fyrir.
Þetta er ekki flókið Icelandair 😉







