
Öll tilboðin í boði þessa stundina
Það er uppi typpið hjá Icelandair. Annan daginn í röð smellir flugfélagið út hraðtilboðum og þar má meðal annars finna fargjöld til fjögurra ágætra borga niður í 14.900 krónur aðra leið.
Það er æði gott verð á flugferð og ekki þarf hér að hafa áhyggjur af farangursgjaldi því taska alltaf innifalin og stundum tvær.
Osló, Gautaborg, Glasgow og Birmingham eru í boði á því verði næsta sólarhringinn og því ríflega 30 þúsund krónur til þeirra fram og aftur. Til allra er hægt að bóka á þessu verði vel fram í júní ef einhver vill taka forskot á sumarsæluna.
Flug til Brussel er aðeins dýrara og fargjald til Washington D.C., Boston og Edmonton kringum 30 þúsund krónurnar.
Heilt yfir má segja að um 10 til 20 þúsund króna lækkun sé að ræða á hverri leið fyrir sig og munar um minna fyrir blanka landsmenn.







