Það er ekkert auðvelt að vera krónueigandi á faraldsfæti. Eitt kvöldið kostar vínglas á bar í London 1.600 krónur en sólarhring síðar 1.700 krónur. Og við engu nær fyrr en við fáum kreditkortareikninginn löngu síðar.

Hækkandi pund gagnvart krónu þýðir að það er ekki að borga sig mikið að versla í Glasgow. Mynd John
Breska pundið hefur hækkað um rúmar þrettán krónur gagnvart íslenskri krónu síðustu vikurnar eða um rúmlega sex prósent. Við greiddum því sex prósent hærra verð fyrir vörur í Bretlandi í október 2015 en við gerðum í byrjun september sama ár. Það aðeins gengið til baka síðan þá.
Það hljómar kannski ekki mikil hækkun en hætt er við að landinn yrði fljótur að taka eftir því að mjólkurlítrinn úti í búð hefði hækkað um sama hlutfall. Okkur munar um allt. Það er því full ástæða til að velja gaumgæfilega ætli fólk til Bretlands að gera stórinnkaup. Þar munar nefninlega æði miklu á vöruverði milli borga.
Glasgow var eitt sinn verslunarferðamekka Íslendinga og hún er það að hluta til ennþá fyrir suma. En hvernig er verðlagið í þeirri borg? Er hagstætt að versla þar?
Í ljós kemur að ekki munar miklu lengur á vöruverði í Glasgow og Reykjavík. Þar auðvitað hækkun pundsins um að kenna. Heilt yfir var verðlag í verslunum skosku borgarinnar 7% lægra en í Reykjavík í janúar 2016 þó auðvitað muni meiru á stöku vörum.
Sem dæmi um verð í Glasgow má nefna að vinsælar Levi´s gallabuxur kosta rúmar tólf þúsund krónur. Vinsæl týpa af Nike hlaupaskóm milli sextán og sautján þúsund krónur meðan flott jakkaföt frá lúxusmerkjum fást vart á lægra verði en 60 til 80 þúsund krónur og upp úr.
Máltíð á góðum veitingastað kostar um 10% minna en sams konar máltíð á betri veitingastað í Reykjavík. Máltíð á því sem flokkast sem ódýr veitingastaður fæst almennt hér í Glasgow kringum 1900 til 2200 krónur meðan þríréttað á betri veitingastað fyrir tvo hoppar kringum ellefu þúsund krónur að jafnaði. Algengt verð á stórum bjór á veitingastað/bar er 650 krónur.
Stök ferð með strætisvagni innan borgar í Glasgow kostar 400 krónur og startgjald leigubifreiða enn hærra eða 500 krónur. Bensínlítrinn fæst hér á 250 krónur.
Það verður því á þessu stigi varla sagt að það borgi sig mikið að heimsækja Glasgow upp á verslun að gera.




