Vefur flugfélagsins Wow Air var tekinn í gegn fyrir nokkru og á honum gerðar ýmsar breytingar til hins betra sem nýtast ætti öllum. Meðal annars er nú hægt að sjá á augabragði langt fram í tímann lægsta verð í boði til allra áfangastaða flugfélagsins.

Ef verð skiptir meira máli en annað er þjóðráð að skoða langtíma verðlista Wow Air. Skjáskot
Þannig til dæmis vitum við að ef menn eru séðir og gætu hugsað sér að gera innkaupin í London fyrir næstu jól er ráð að bóka flug nú strax því allra lægsta fargjald Wow Air til London er einmitt í boði nú í desember. Níu þúsund og níu hundruð krónur eða tæpar ellefu með bókunargjaldi er dágóður prís og að lágmarki helmingi lægra verð en greiða þarf fyrir sama flug fái fólk sömu hugmynd í október eða nóvember.
Berlín er þannig ekki síðri jólakostur því þar einnig er allra lægsta fargjald Wow Air allt árið einmitt í desember eða krónur 12.499 plús bókunargjald og töskugjald ef við á.
Á hinn bóginn er ágúst vænlegastur mánaða ætli fólk að fljúga til Alicante. Þá kostar flugferðin aðra leið 18.899 plús bókunar- og töskugjöld.
Um að gera að nýta sér þessa þjónustu, bóka með góðum fyrirvara og komast út í töluverðum plús í stað þess að greiða hámarksverð þegar nær dregur. Á vef Wow Air skal velja „sjá fleiri tilboð“ í gula glugganum sem sýnir lægsta verð til ýmissa borga. Á næstu síðu velja „sjá verð“ innan hvers áfangastaðar fyrir sig og voilà!







