Hugsanlegir viðskiptavinir þurfa ekki að eyða miklum tíma í leit að draumaferðinni hjá ferðaskrifstofunni Ferð.is. Þar eru engar draumaferðir í boði. Reyndar eru þar alls engar ferðir til sölu.

Annaðhvort ríður leti starfsmanna Ferð.is ekki við einteyming ellegar ferðaskrifstofan er að deyja drottni sínum.
Allt útlit er fyrir að þessi þriggja ára gamla ferðaskrifstofa, dótturfyrirtæki Vita og Icelandair, sé í andaslitrunum ef marka má vef þeirra. Þar aðeins að finna gamlar upplýsingar og þrjár ferðir með Primera Air sem ekki er svo hægt að bóka þegar allt kemur til alls. Ferðir sem eru líklega frá því í vor að okkur sýnist.
Skólabókardæmi um að láta verkin tala fremur en blása sig upp í fjölmiðlum með innantómu blaðri. Það var nefninlega blásið í stóra veislu þegar Ferð.is tók fyrst til starfa. Heilsíðuauglýsingar í blöðum og lykilorð ferðaskrifstofunnar að bjóða „draumaferðina á lægra verði.“
Sá draumur virðist úti.







