Tilboð Wow Air halda áfram að koma á óvart en næstum daglega streyma nú inn um tölvulúguna skeyti um feitan afslátt á ferðum með flugfélaginu og fargjöld til skemmtilegra áfangastaða allt niður í níu og níu.
Það er frábært mál í alla staði og eins og við höfum áður sagt er loks farið að bera á lágum fargjöldum hjá hinu sjálfskipaða „lágfargjaldaflugfélagi“ og það ber því nafn með rentu þessi dægrin. Þetta er fín þróun og við Íslendingar verðum að vera dugleg að eiga viðskipti við flugfélagið meðan þeir bjóða svo vel sem raun ber vitni. Það er nefninlega svo að viðskiptamódel lágafargjaldaflugfélaga standa nokkuð og falla með fjölda fólks þegar verð er komið svo neðarlega.
Þennan daginn er Wow Air að skjóta út tilboðum aðra leiðina til Berlínar og Parísar allt haust og fram á jól niður í 9.900 krónur sem í raun eru 10.895 krónur sé öllum gjöldum bætt við. Enginn farangur sem endranær þó. Aðalatriðið það að komist er til frábærra borga án þess þurfa að fara á fund bankastjóra.
Fararheill kannaði hvort flugfélagið væri nokkuð að nota gamla „ein-dagsetning-í-boði-á-þessu-verði“ trixið en því fer fjarri allavega í tilfelli ferða til Parísar. Reyndar aðeins ein ferð á þessu verði í september þegar þetta er skrifað en fimm ferðir í október (01,08,20, 22, 29), átta dagsetningar í nóvember (03,05, 12, 19, 21, 24, 26, 28) og sex dagsetningar í desember (01, 03, 05, 10, 12, 15).
Við gætum haldið nokkrar ræður um ágæti Parísar þegar liðið er á veturinn og ekki síst þegar jólahátíðin nálgast en látum nægja að benda á vegvísi okkar um borgina hér.








