Leit á vef Icelandair að fargjöldum til Orlando næsta haust og vetur leiðir í ljós að ekki er þangað komist mikið undir 80 þúsund krónum á mann fram og aftur í besta falli. Reyndar algengara að greiða þurfi vel yfir hundrað þúsund krónur fyrir flugið. En við erum með betri hugmynd.

Ekki mjög amalegt hótel og í næsta nágrenni við barnaveröld Disney í Orlando.

Ekki mjög amalegt hótel og í næsta nágrenni við barnaveröld Disney í Orlando.

Breska ferðaskrifstofan Travelplanner er með í boði þessa stundina sértilboð til Orlando frá nokkrum stöðum í Bretlandi allan næsta veturinn og sú ferð er hreint kjörin fyrir barnafólk. Ástæðan sú að gist er á góðu Disney-hóteli örfáar mínútur frá DisneyWorld og öðrum skemmtigörðum svæðisins og þangað fara skutlur frítt á milli oft á dag. Ekki er heldur leiðinlegt að börnin borða frítt í ferðinni á tilteknum veitingastöðum og það getur munað um það sé buddan tómleg.

Allra best er samt verðið á umræddri ferð. Það rokkar nokkuð eftir dagsetningum en komist fjögurra manna  fjölskyldan út á tímabilinu frá október og fram til apríl kostar fjórtán daga pakkinn allt niður í 117 þúsund krónur á mann. Það er semsagt lægra verð á fjórtán daga ferð Travelplanner frá Bretlandi en algengu verði á fluginu einu saman hjá Icelandair.

Auðvitað er þetta ekki alveg sársaukalaust. Kaupa þarf flug til Bretlands og heim aftur þaðan og það getur kostar stress og streð. Þá miðast þetta ákveðna tilboð aðeins við tvo fullorðna og tvö börn sem útilokar stóran hóp fólks. En þá ber að muna að það er lítt merkilegt við hluti sem ekki þarf að hafa aðeins fyrir.

Tilboðið hér í smáatriðum.