Enginn skortur er á samkeppni í bílaleigu vestanhafs í Bandaríkjunum og leggi fólk sig eftir má annars lagið finna tilboð sem oft sýnast of góð til að vera sönn. En okkur vitandi er aðeins ein bílaleiga sem reglulega kemur okkur á óvart hvað verð snertir og virðist satt best að segja vera ein allra ódýrasta bílaleiga heims. 

Mikill fjöldi bílaleiga finnast í Bandaríkjunum en sumar virðast betri en aðrar. Mynd Ramón Durán

Mikill fjöldi bílaleiga finnast í Bandaríkjunum en sumar virðast betri en aðrar. Mynd Ramón Durán

Hér er um að ræða Autorentals.com en um hálft ár er síðan við leigðum bifreið hjá þeim í Flórída og fáum þess vegna reglulega tilboð sent í pósti. Þau tilboð eru undantekningarlítið makalaust góð.

Því til sönnunar má sjá á vef Autorental nú bílaleigubíla á ákveðnum tímum allt niður í 560 krónur á dag!!! Þar er um að ræða smærri bifreið og í Miami en nokkur munur er á tilboðum og verði eftir fylkjum og reyndar borgum líka. Vestar í landinu í Las Vegas er lægsta verð á bílaleigubíl 980 krónur dagurinn þegar þetta er skrifað.

Að okkar mati engin spurning að hér er hægt að gera aldeilis góð kaup heilt yfir og mikill sparnaður miðað við hefðbundið leiguverð stærri erlendra bílaleiga. Sakar ekki að skoða sé fólk á leið vestur um haf.

Vefur þeirra hér.

* Tekið skal fram að Fararheill á engra hagsmuna að gæta gagnvart Autorentals. Við bendum bara hiklaust á öll góð tækifæri fyrir ferðalanga á spara á ferðalögum. Nógu dýrt er lífið nú samt.