Athyglisverður dómur féll í Bretlandi fyrir nokkru þegar British Airways var gert að greiða skaðabætur til handa fjölda fólks sem varð fyrir töfum þegar nauðlenda þurfti þotu flugfélagsins á leið til Osló frá Heathrow.
Forráðamenn BA höfnuðu alfarið bótaskyldu eftir að vélin snéri við til Heathrow þegar kviknaði í öðrum hreyfli vélarinnar og nauðlenti þar vandræðalaust. Rökin þau að vélarbilun væri sannarlega ófyrirséð atvik en samkvæmt þeirri ástæðu losnar flugfélag við að greiða hugsanlegar bætur samkvæmt Evrópureglum.
En þau rök féllu um sjálft sig ári síðar þegar skýrsla rannsóknarnefndar flugslysa þar í landi sýndi að vélarbilunina mátti rekja til mistaka flugvirkja BA. Gleymst hafði að festa vélarhlíf á umræddri vél með þeim afleiðingum að sú hlíf losnaði af og lenti í hreyflinum með fyrrgreindum afleiðingum. Mannleg mistök starfsmanna BA ollu því töfunum og þess vegna alls ekki ófyrirséð atvik. British Airways féllst fljótt og örugglega á að greiða bætur þeim sem þess óskuðu þegar það kom upp úr dúrnum.
Enn ein ástæða fyrir að rannsóknarnefnd flugslysa á Íslandi þarf að gera mun betur og taka ekki áratugi að klára skýrslur sínar. Miskabætur geta nefninlega fljótt fyrnst samkvæmt íslenskum lögum.








