Til eru þeir sem halda fram að engar þurfi handbækurnar eða vegvísa þegar fólk leggur land undir fót. Það eina sem þurfi sé listi yfir hvar ódýrasta áfengið fæst hverju sinni.

Í samanburði við önnur lönd er bjór í Þýskalandi í dýrari kantinum en stemmarinn er líka einstakur. Mynd Barbara Nilsson

Í samanburði við önnur lönd er bjór í Þýskalandi í dýrari kantinum en stemmarinn er líka einstakur. Mynd Barbara Nilsson

Þrátt fyrir harmakvein herra Tyrfingssonar og félaga hjá SÁÁ og sambærilegum samtökum erlendis er það óumdeild staðreynd að neysla áfengis eykst nánast alls staðar þar sem sala þess er leyfð. Hún hefur stóraukist hérlendis og hægt væri að færa rök fyrir að Íslendingar almennt drekki mun meira erlendis en þeir gera hér heima.

En þeir drekka kannski minna en ella í Noregi þar sem tröllasögur af fokdýrum bjórum hafa gengið um tíma eftir Hrunið. Það er auðvelt að finnast eitthvað fokdýrt þegar krónan okkar hrapar hraðar en Felix Baumgartner í frjálsu falli. Sannarlega eru stöku barir í Osló til dæmis að heimta 1.500 til 1.700 krónur íslenskar fyrir einn stóran en það er ekki almennt verð heilt yfir. Allavega ekki sé mið tekið af eina vefmiðlinum sem heldur utan um bjórverð á börum í hinum ýmsu löndum heims.

Það gerir vefmiðillinn Pintprice og samkvæmt þeirra nýjasta lista er meðalverð á kollu af bjór í Osló 1.273 krónur miðað við miðgengi dagsins. Það er á pari við það sem gerist sums staðar í miðborg Reykjavíkur þó himinn og haf sé milli meðallauna í löndunum tveimur.

En það er einn staður sem rúllar bæði Íslandi og Noregi í þessu tilliti. Dýrasti bjórinn að meðaltali fæst nefninlega í Grænlandi. Þar hika bareigendur ekki við að heimta 1.380 krónur fyrir einn kaldann.

Gallharðir bjórþambarar sem vilja láta peninga sína endast lengst yfir sumblinu eiga töluvert ferðalag fyrir höndum því fara verður til Bhutan, Panama eða Myanmar til að finna bjór á lægsta verði að meðaltali. Þar kostar stór bjór kringum 70 krónur eða svo.