Það hefur vakið furðu okkar hjá Fararheill hversu takmarkað úrval ferða er héðan í boði til Flórída. Þrátt fyrir beint flug Icelandair er hending ef inn dettur pakkatilboð sem bragð er að.

Miami er fjörug og ekki skemmir í kjölfarið að flatmaga á fínni ströndu nálægt Everglades fenjasvæðinu. Mynd C.Russell
Sé vefur Icelandair skoðaður finnast fjórar eða fimm pakkaferðir til Flórída næsta haust og vetur en þær eru allar sama marki brenndar að vera örstuttar, aðeins fjögurra daga ferðir og miðast meira við að fylla sæti en að koma til móts við þarfir viðskiptavina.
Ritstjórn Fararheill telur dapurlegt að bjóða svo stuttar ferðir. Flugið eitt og sér er jú tæpir sextán tímar og þá á eftir að koma sér áfram á áfangastað í Fort Lauderdale eða St.Petersburg. Með öðrum orðum; fólk er vart búið að blikka auga áður en komið er að heimferð. Engan veginn ávísun á afslöppun og notalegheit.
Þá er tvennt í boði langi fólki samt sem áður til Flórída, og hvern langar það ekki, án þess að sætta sig við örstuttar ferðir. Annars vegar að kaupa flug fram og aftur og bóka gistingu á eigin spýtur ellegar skoða hvað ferðaskrifstofur í helstu nágrannalöndum eru að bjóða. Miðað við stöðuna á vef Icelandair þegar þetta er skrifað má gera ráð fyrir að flug fram og aftur í haust kosti manninn um og yfir hundrað þúsund krónur. Hótel má víða finna og sannarlega hægt að setja saman ágætan pakka sé þolinmæði fyrir hendi.
Hins vegar er hægt að finna hentuga pakkaferð með breskri, norskri eða danskri ferðaskrifstofu og láta sig hafa dag eða tvo í London, Kaupmannahöfn eða Osló fyrir eða eftir Flórídaferðina. Sem þarf ekki að vera slæmt þó auðvitað sé alltaf best að fljúga þráðbeint á áfangastað.
Ein Flórídaferð sem við rákumst á og kannski freistar ferðaþyrstra Íslendinga er með dönsku ferðaskrifstofunni Top Tours. Þar bjóða menn ellefu daga haustferðir með gistingu á tveimur stöðum, Miami og Fort Meyers, á ágætum hótelum og bílaleigubíll með öllum tryggingum með í kaupbæti. Þessi ferð fyrir fjögurra manna fjölskylduna kostar 138 þúsund á mann miðað við miðgengi dagsins eða 175 þúsund miðað við tvo frá Kaupmannahöfn. Vitaskuld þarf líka að komast til Köben og greiða það í ofanálag.
Klárlega enginn súperprís en miðað við það sem gengur hérlendis allsæmilegt og gefur fólki tækifæri til að sjá annað á Flórída en Orlando og nágrenni. Miami er forvitnilegt að skoða og Fort Meyers er ekki mjög frábrugðinn Bradenton eða St.Petersburg nema bara fallegri eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.








