Hafi fólk flett blöðum nú eftir áramótin hefur varla farið hjá þeim að ferðaskrifstofurnar íslensku er æði fljótar til þetta árið. Vita, Heimsferðir og Úrval Útsýn hafa þegar tekið út heilsíðuauglýsingar og birta þar sumardagskrá sína.
Hvort það tengist eitthvað gagnrýni Fararheill síðustu árin skal ósagt látið en hin síðari ár hefur ekki bólað mikið á sumarpökkum ferðaskrifstofanna þetta snemma. Þetta er hið besta mál og gefur fólki tækifæri til að spara fjármuni með því að gera áætlanir fram í tímann.
Þannig bjóða til dæmis bæði Heimsferðir og Úrval Útsýn sérstakan bókunarafslátt sé greitt inn á ferðir eigi síðar en strax. Heimsferðir býður „allt að“ 15.000 króna afslætti á ferð sé bókað eigi síðar en í næstu viku og ÚÚ auglýsir 60 þúsund króna afslátt á hverja fjögurra manna fjölskyldu.
Hægt væri að húðskamma bæði fyrirtæki fyrir loðin loforð því hvergi kemur fram hvenær eða í hvaða ferðum „allt að“ afsláttur Heimsferða er í boði Né heldur samanstendur meginþorri íslenskra fjölskyldna af tveimur fullorðnum og tveimur börnum undir tólf ára aldri og því er Úrval Útsýn að mismuna fólki verulega með sínu tilboði.
Látum það liggja milli hluta að sinni. Við vildum bara segja ykkur frá hversu keimlík tilboð beggja aðila eru og er auðvelt að bera saman því bæði bjóða meira og minna upp á sömu áfangastaðina. Taflan hér að neðan sýnir auglýst lágmarksverð með bókunarafslætti til þessara fjögurra staða á mann miðað við tvo fullorðna. Ekki er um sömu gistingu að ræða eða sama ferðamánuð en þetta er það besta sem þessar ferðaskrifstofur bjóða upp á til Tenerife, Madeira, Almeria og Benídorm sumarið 2014.








