G ötur og síki Amsterdam-borgar eru mörgum kunn og flestir njóta sín vel á þeim slóðum. Öllu færri hafa séð Amsterdam af sjó en það er líka dágóð upplifun. Ekki hvað síst þegar hægt er að háma í sig ljúffengar pönnukökur á meðan eins og enginn sé morgundagurinn.

Ekki alveg belgískar vöfflur en hollenskar pönnsur komast nálægt.

Ekki alveg belgískar vöfflur en hollenskar pönnsur komast nálægt.

Pönnukökubáturinn í Amsterdam er hann kallaður fljótabátur sem þvælist með ferðafólk um höfn Amsterdam alla daga. Þeir túrar svo sem ágætir út af fyrir sig en Amsterdam að kvöldi til er mun fallegri ásýndar en Amsterdam að degi til.

Og það er á laugardagskvöldum sem Pönnukökubáturinn stendur undir nafni því einu sinni í viku á þeim tíma fer báturinn í tveggja stunda útsýnistúr og um borð eru staflarnir af heitum og heillandi pönnukökum sem hver má borða að vild.

Sé fólk með ofnæmi fyrir pönnsum þarf ekki að örvænta heldur því einnig er lítið hlaðborð í boði og hægt að seðja hungur með kjötbollum, indverskum réttum, grænmetisréttum og ekta rjómaís. Allt líka innifalið í verðinu sem er um 3.300 krónur og því tiltölulega ódýrt út að borða ef fólk sé litið svo á málin.

Vissara er að panta fyrirfram því aðeins er ein ferð í boði í viku hverri. Nánar um þann bát og margt annað í vegvísi Fararheill um Amsterdam.