Ah. Hannes Smárason. Hvað er hægt að segja um þennan lúsablesa fyrir utan að hann er flinkur að ná sér í fallegar stelpur?

Hannes með fyrrverandi. Þá lofaði hann gulli og grænum en stóð ekki við. Nú þurfum við að gjalda þess hve hann var vitlaus

Hannes með fyrrverandi. Þá lofaði hann gulli og grænum en stóð ekki við. Nú þurfum við að gjalda þess hve hann var vitlaus

Jú, kannski er hægt að segja að vera hundrað prósent viðvaningur í hlutabréfaviðskiptum kemur sér vel þegar Kári Stefánsson er annars vegar. Kári er oft nefndur skynsamur og gáfaður maður en öll ritstjórn Fararheill dregur það mjög í efa. Kári smartvísi lét eftir sér hafa að Hannes vinur hans ætti skilið annað tækifæri í lífinu. Hann væri jú sniðugur gaur.

En Kári sjálfur er ekki upp á marga fiska og hreint ekki mjög gáfaður að mati fjögurra manna ritstjórnar Fararheill.is. Allavega ekki nógu gáfaður til að halda uppi líftæknifyrirtæki sínu DeCode Geneticsþrátt fyrir milljarða króna ríkisábyrgð. Né heldur vara annað líftæknifyrirtæki við að ráða mann sem hefur flekkaðra mannorð en flestir aðrir Íslendingar.

En jú, að vera opinber vitleysingur nægir til að ná í fallegar stelpur virðist vera ef marka má Hannes Smárason  og kannski útskýrir X-ið í nafni kærustunar. Hinn sama Hannes Smárason og næstum setti stærsta flugfélag landsins, Icelandair, á hausinn af því hann taldi að „við höfum fulla trú á því að AMR sé vel staðsett til þess að geta nýtt sér það viðskiptaumhverfi sem AMR er í um þessar mundir .“ Þar átti Hannes vinur okkar við hlutabréf í bandaríska flugfélaginu American Airlines sem hann keypti í fyrir milljarða króna en skömmu síðar fór fram á gjaldþrot.. Hannes hafði svo mikla trú á hinu bandaríska fyrirtæki að hann veðsetti stærsta flugfélag Íslands.

Sniðugur var Hannes ekki. Það sem ergir okkur á ritstjórn Fararheill er hins vegar sú staðreynd að þessi deli réðu um hríð öllu varðandi Icelandair. Jamm, flugfélaginu sem flýgur vélum sem komnar eru á sama aldur og Justin Bieber og það er dálítið Hannesi að kenna. Sama Hannesi og fékk feitlaunað starf hjá lyfjafyrirtæki fyrir skömmu.

Vegna Hannesar erum við sem gjarnan fljúgum með Icelandair að fljúga gömlum vélum. Vegna Hannesar erum við sennilega að greiða mun hærra verð fyrir flugmiðann en við ella þyrftum.

Ritstjórn Fararheill, fyrir sitt leyti, vonar að Hannes þessi verði dæmdur til samfélagsvinnu ævilangt og það sem allra fyrst.  Hann er klárlega sekur um að sætið í Icelandair vélinni er gamalt og lúið þegar annað gæti verið uppi á teningnum ef skynsamara fólk hefði komist í álnir fyrir hrun. Kannski væri líka ódýrara að fljúga með Icelandair ef Hannes vinur okkar hefði ekki farið með allt til andskotans…