Á morgun segir sá lati og sennilega má heimfæra það á einhvern hjá Wow Air sem lítið hugsar um viðskiptavini fyrirtækisins. Á forsíðu félagsins nú má sjá að allra lægsta verð í boði aðra leið til Alicante á 20.900 krónur. Sem er ekki lélegt verð nema fyrir þær sakir að þetta ákveðna tilboðsflug er rétt ófarið í loftið þegar þetta er skrifað á hádegi og fullbókað í þokkabót.
Einhver gæti haldið að ekki sé flókið mál að skipta út þessu ákveðna tilboði fyrir eitthvað aðeins fram í tímann enda hoppar fólk almennt ekki í flug til Spánar með engum fyrirvara. Verra kannski að jafnvel þó takist að finna slíka einstaklinga þá komast þeir ekki heim aftur með Wow því síðasta flug ársins frá Alicante er á þriðjudaginn kemur eftir þrjá daga. Það er fullbókað.
Allra, allra verst að mati Fararheill er þó sú staðreynd að á kynningarborða Wow Air sem birtist nú á forsíðu vefs þeirra segir skýrt og skilmerkilega að „Okkar allra lægstu WOW verð. Lágmark 4 sæti í boði.“ Flugið til Alicante er þó fullbókað þegar eftir er leitað og búið að vera í allan dag.
Það segir ritstjórn Fararheill aðeins það að það er ekki mark takandi á „lágmark 4 sæti í boði“ því ef eitt slíkt tilboð kemst gegnum nálaraugað þá komast fleiri. Það loforð er nú dautt í okkar augum.
UPPFÆRT kl. 12:48: Umrætt tilboð loks horfið af vef Wow um svipað leyti og farþegar eiga að vera komnir út á flugstöð








