Þó ritstjórn Fararheill sé ýmsum skít vön fyrir að standa vörð um réttindi íslenskra ferðalanga og benda þeim sem lesa á leiðir til að spara fúlgur fjár á ferðalögum þá er fátt súrara en horfa upp á stóra og sterka fjölmiðla stela efni og hugmyndum án þess að blikka auga.

2007 módelið af siðferði aftur upp á borð eða hvað?

2007 módelið af siðferði aftur upp á borð eða hvað?

Í dag, 24. október, birti Viðskiptablaðið á vef sínum grein sem bar nafnið „Ferðavefsíða fyrir flughrædda“ undir liðnum ferðalög. Það er snjóbolti í helvíti að það sé tilviljun að daginn áður, 23. október, birti Fararheill greinina „Flughrædd? Þá eru þessar vefsíður fyrir þig.“ Báðir fjalla um sama efni eins og nafnið gefur til kynna.

Á skólalóð væri þetta kallað einelti og tekið býsna alvarlega. Viðskiptablaðið er jú mannað tugum, veltir hundruð milljónum króna og gefur sig út fyrir að fjalla um viðskipti. Fararheill.is er mannaður fjórum, er frír og auglýsingalaus og fjallar eingöngu um ferðalög.

En kannski kemur þetta ekki á óvart. Einn sá sem farinn er að skrifa reglulega fyrir Viðskiptablaðið, eins og reyndar mörg önnur blöð landsins, er maðurinn að baki túrista.is sem einnig fjallar um ferðalög.

Sérdeilis smekkleg framkoma.