Vart er íslenskum vef eða tímariti nú flettandi án þess að rekast á heljarmiklar greinar um mestu og bestu jólamarkaði heims. Svokölluð lífstílsrit fylla dálka sína af slíku efni en Fararheill fær hvergi séð að fólkið sem skrifað hefur hafi sannarlega sjálft prófað svo marga að það geti fullyrt eitt né neitt um slíkt.

Það er bara kjánalegt að fullyrða um „bestu“ jólamarkaði heims eins og flestir virðast gera.

Það er bara kjánalegt að fullyrða um „bestu“ jólamarkaði heims eins og flestir virðast gera.

Okkur er reyndar til efs að nokkuð af þessu efni sé neitt annað en þýðingar á erlendum greinum þó sjaldnast komi það fram.

Auðvitað er hægt að tala um mestu markaðina í því tilliti að um þá stærstu eða fjölsóttustu sé að ræða en að fullyrða eitthvað um þá bestu er ekkert nema kjánaskapur. Jólamarkaðir, eins og öll önnur reynsla á ferðalögum, er aðeins eins skemmtileg eða leiðinleg og hugarfar viðkomandi og eða sá hópur sem ferðast er með.

Sé eiginmaðurinn neikvæður út í eitt á rölti um jólamarkaði í Prag er næsta víst að eiginkonan mun ekki njóta þeirrar lífsreynslu til fulls og gildir þá einu hvort þau eru á stærsta jólamarkaði heims eða þeim fjölbreyttasta.

Við ráðleggjum fólki að kíkja á lista Fararheill yfir helstu jólamarkaði Evrópu. Ekkert bull og engin vitleysa þar.

Svo þarf ekki að fara á taugum þó ekki náist að heimsækja jólamarkaði fyrir jól þó innlendar ferðaskrifstofur séu nú reyndar eingöngu að bjóða slíkar ferðir snemma í desember. Nokkrir slíkir markaðir eru starfræktir vel fram á nýtt ár þó vissulega sé stemmarinn allra mestur rétt fyrir hátíðina sjálfa. Hér að neðan má sjá hvenær jólamarkaðir opna og hvenær þeir loka í ýmsum yndislegum borgum.

  • Berlín 25. nóvember til 24. desember
  • Búdapest 29. nóvember til 1. janúar
  • Kaupmannahöfn 15. nóvember til 23. desember
  • Edinborg 26. nóvember til 5. janúar
  • Frankfurt 27. nóvember til 22. desember
  • Helsinki 30. nóvember til 6. janúar
  • London 29. nóvember til 6. janúar
  • París 10. nóvember til 6. janúar
  • Prag 30. nóvember til 12. janúar
  • Salzburg 21. nóvember til 23. desember
  • Pétursborg 21. desember til 9. janúar
  • Stokkhólmur 25. nóvember til 23. desember
  • Vín 16. nóvember til 24. desember
  • Zurich 21. nóvember til 24. desember.