F ræg er sagan af einbúanum McGregor sem bjó víðs fjarri öðrum mannabyggðum en farið var að óttast um eftir margra mánaða snjókomu svo björgunarsveitir voru sendar af stað. Þeir koma að húsi karlsins á bólakafi í snjó og eru vikutíma að grafa niður á strompinn þaðan sem þeir kalla niður hvort einhver sé á lífi. Jú, svarar McGregor þurr á mann og spyr hver vilji vita. Þetta er björgunarsveitin kalla menn niður strompinn. „Burtu,“ gellur í gamla. „Kaupi engin merki.“

Fjölmargir veitingastaðir í Glasgow bjóða tví- og þríréttað á föstu verði. Það þarf bara að hafa augun hjá sér.
Hvort sem það er verðskuldað eða ekki er raunin sú að Skotar eru almennt taldir nískari en andskotinn. Eigi það við rök að styðjast ætti að vera fjandanum erfiðara að finna eitthvað bitastætt í skoskum borgum á borð við Glasgow sem ekki kostar fúlgur fjár.
Það er þó ekki raunin. Allmargir veitingastaðir í borginni, þar með taldir nokkrir afar fínir, bjóða reglulega tví- og jafnvel þríréttað í hádegi fyrir fast lágt verð og allnokkrir til viðbótar miðsvæðis bjóða svipuð kjör snemma á kvöldin. Þetta á við virka daga en ekki föstudaga eða um helgar.
Velflestir þessara staða auglýsa þetta nokkuð kyrfilega með götuspjöldum og þarf aðeins að hafa augun hjá sér. Meira að segja fyrir íslenskan krónueiganda er ekki mikið að greiða 1.800 krónur fyrir tvíréttað eða 2.400 krónur fyrir þríréttað eins og allvíða er í boði.
Meira að segja lúxusstaðir á borð við Chardon d´Or bjóða oft þríréttað fyrir litlar 3.800 krónur. Ekkert nískt við það.
Þá verður og að minnast á bændamarkaðinn, Scottish Farmers Market, sem haldinn er á tveggja vikna fresti á horni Dumbarton og Hyndland stræta. Þar er bæði hægt að kaupa ferskvöru á lægra verði en ella en líka fá sér heitt í gogginn á vægu verði.
Að lokum er líka vert að geta þess að sé hugmyndin að fá sér neðan í því er hægt að spara skilding með því að velja sér knæpu fjarri hinum vinsælu Ashton Lane eða Merchant City. Getur munað helmingi á verði drykkja þar og annars staðar þó auðvitað mun meira líf sé kringum þá dýrari.




