Hér á landi er skammt síðan flugfélagið easyJet tók til starfa og það með góðum árangri en svipaður tími er síðan Norwegian hóf einnig flug til og frá Íslandi. Aldeilis fyrirtak að fá bæði þessi flugfélög sem eru talin með þeim allra bestu af svokölluðum lágfargjaldaflugfélögum þó deila megi reyndar um hversu lággjalda þau séu í raun og veru þegar allt kemur til alls.

Tvö minna þekkt flugfélög í sama geira, Airberlin og Transavia, fljúga líka hingað til lands yfir sumartímann og það má því segja að samkeppni sé alveg bærileg í flugi til og frá landinu. Eitt vinsælt flugfélag sem flýgur til fjölda áfangastaða í Evrópu vantar þó enn í flóruna. Það er írska flugfélagið umdeilda Ryanair en eigandi þess er litríkari persónuleiki en Picasso var á sterum.

Víða í löndum Evrópu þar sem hægt er að velja milli easyJet og Ryanair ríkja miklar deilur um hvort flugfélagið sé betra, þægilegra eða ódýrara og þessar deilur hafa ratað inn í sjónvarp í Þýskalandi. Þar býður sjónvarpsstöðin ZFD upp á svokallað uppgjör milli fyrirtækja í sérstökum þætti og eitt slíkt átti sér stað milli fyrrnefndra tveggja lágfargjaldaflugfélaga. Niðurstaðan gæti komið þeim sem kunna skil á þýsku tungumáli á óvart.

Nánar á heimasíðu ZDF hér.