Eitt sinn endur fyrir löngu var Sigurjón Egilsson, bróðir þáverandi forstjóra 365, ritstjóri Fréttablaðsins. Hann réð núverandi ritstjóra Fréttatímans, Sigríði Dögg Auðunsdóttur, til starfa og gaf helstu og bestu verkefnin. Nú er sonur Sigurjóns, Kristján Sigurjónsson, kominn með fasta vinnu við pistlaskrif á Fréttatímanum.

Allir sem í vitið stíga vita að fátt er tilviljunum háð þegar öllu er á botninn hvolft. Vefmiðillinn Túristi hefur, eins og Fararheill.is hefur áður fjallað um, fengið mikla og góða umfjöllun víða. Það er að nokkru leyti Kristjáni sjálfum að þakka enda grimmur að láta vita af sér en hann hefur fengið byr yndir báða vængi frá föður sínum sem starfar enn hjá 365 og það var faðirinn sem á sínum tíma gaf núverandi ritstjóra Fréttatímans tækifæri í blaðamennsku hér á landi.

Það er því spurning hversu mikil tilviljun það er að Túristi er allt í einu orðinn fastskrifandi pistlahöfundur á Fréttatímanum. Líka er það kannski tilviljun að Túristi hefur fengið ítarlega umfjöllun á Fréttablaðinu, Vísi og á Bylgjunni. Á Vísi má lesa tæplega 400 greinar um eða eftir Túrista. Greinar eftir Fararheill? Engin.

Sem er undarlegt með tilliti til að það var Fararheill sem fyrst hóf að fjalla um stundvísi flugfélaga landsins. Það er Fararheill sem bendir Íslendingum á hversu mikið ódýrara er að ferðast með erlendum ferðaskrifstofum eða á eigin vegum og það er Fararheill sem bendir á margt sem miður fer í ferðaþjónustu hérlendis. Það gerir Túristi ekki.

Eðlilegt? Tilviljun?

Við höldum ekki. Pólítík og vinatengsl öllu frekar. Og landinn geldur fyrir.