F erðalangar sem koma til smábæjarins Hallstatt í austurrísku Ölpunum eru allflestir á einu máli: fallegri smábær er vandfundinn.
Ekki aðeins er bærinn lítill og kyrrlátur heldur stendur hann í snarbrattri hlíð við hið ekki síður fallega Hallstätter vatn. Sannarlega staður til að gleyma lífsins áþján og anda alla leið.
En þessi litli bær eins og svo margir gamlir evrópskir bæir, geymir dálítið merkilegt leyndarmál.
Hér er nefninlega stórt og mikið hauskúpusafn, Beinhaus, í kofa einum í miðjum bænum eins og ekkert sé sjálfsagðara. Enginn er beinlínis að auglýsa þetta hauskúpusafn enda strangt til tekið ekki safn heldur grafreitur heimamanna ef svo má að orði komast.

Beinahúsið umtalaða. Mynd megjegyezhető
Hér liggja í hrúgum hauskúpur tæplega 1500 fyrrum íbúa Hallstatt, margar hverjar skreyttar með nafni viðkomandi og ýmsum táknum öðrum í ofanálag.
Guðlast hugsar einhver en ástæða þessa er sú að sökum legu þorpsins var og er plássið í agnarsmáum kirkjugarðinum vægast sagt takmarkað. Því var brugðið á það ráð fyrr á öldum að grafa fólk aðeins tímabundið, tíu ár eða svo, grafa það upp aftur, henda beinagrindum en koma hauskúpum fyrir á tryggum stað.
Siður þessi stóð allt til ársins 1960 en öllum sem fæddir eru í bænum stendur þetta enn til boða þó flestir kjósi nú að láta brenna sig að þessu lífi loknu.
Ágætt að hafa hugfast að Hallstatt hefur hin síðustu ár orðið geysivinsæll hjá svokölluðum áhrifavöldum. Það merkir að hér er allt of mikið af fólki nánast alla daga ársins. Flestir þeirra hafa þó ekki hugmynd um hauskúpusafnið 😉
Ef þú finnur þig í Salzburg eða Munchen er þjóðráð að skjótast til Hallstatt. Þangað er aðeins tæplega 40 mínútna akstur um aldeilis stórkostlegt hérað landsins. En hafðu hugfast að hér er mökkur af erlendu ferðafólki 24/7 nánast alla daga ársins.






